Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 26. mars 2021 13:32
Magnús Már Einarsson
Aldrei jafn margar úr erlendum félagsliðum
Icelandair
Þorsteinn er að fara að stýra sínum fyrstu leikjum.
Þorsteinn er að fara að stýra sínum fyrstu leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það segja mér fróðir menn að það hafa aldrei verið jafn margir leikmenn frá erlendum félögum í hópnum," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, þegar hann tilkynnti hópinn í dag fyrir komandi vináttuleiki.

Ísland mætir Ítalíu 13. apríl og ónefndum andstæðingi 10. apríl en tilkynnt verður um þann andstæðing í næstu viku. Sextán af 23 leikmönnum í hópnum eru á mála hjá erlendum félagsliðum.

Varnarmaðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir er ekki í hópnum að þessu sinni þar sem hún þyrfti að fara í tíu daga sóttkví við heimkomu ef hún kæmi í leikina frá Noregi.

Kristín Dís Árnasdóttir úr Breiðabliki, Barbára Sól Gísladóttir úr Selfossi og Svava Rós Guðmundsdóttir hjá Bordeaux eru ekki með en þær hafa verið að glíma við meiðsli.

„Ég er þokkalega ánægður með standið á leikmönnum. Þær eru allar að spila og á ágætis róli. Það er þokkalega gott stand á flestum leikmönnum," sagði Þorsteinn.

Markverðir
Sandra Sigurðardóttir | Valur | 34 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Örebro | 1 leikur
Telma Ívarsdóttir | Breiðablik

Varnarmenn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir | Breiðablik
Elísa Viðarsdóttir | Valur | 38 leikir
Anna Björk Kristjánsdóttir | Le Havre | 43 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard | 89 leikir, 6 mörk
Guðrún Arnardóttir | Djurgarden | 8 leikir
Guðný Árnadóttir | Napoli | 8 leikir
Hallbera Guðný Gísladóttir | AIK | 117 leikir, 3 mörk
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik | 2 leikir

Miðjumenn
Sara Björk Gunnarsdóttir | Lyon | 136 leikir, 22 mörk
Andrea Rán Hauksdóttir | Le Havre | 10 leikir, 2 mörk
Dagný Brynjarsdóttir | West Ham | 90 leikir, 29 mörk
Berglind Rós Ágústsdóttir | Örebro | 1 leikur
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Orlando Pride | 76 leikir, 10 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir | Eintracht Frankfurt | 10 leikir, 2 mörk
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir | Bayern Munich | 4 leikir, 1 mark

Sóknarmenn
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Le Havre | 48 leikir, 6 mörk
Elín Metta Jensen | Valur | 54 leikir, 16 mörk
Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 33 leikir, 2 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir | Kristianstad | 5 leikir, 2 mörk
Hlín Eiríksdóttir | Pitea IF | 18 leikir, 3 mörk
Athugasemdir
banner