fös 26. mars 2021 09:38
Magnús Már Einarsson
Innlendir og erlendir aðilar skoða sjónvarps- og útsendingarréttindi
Mynd: Getty Images
Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) og Íslenskur Toppfótbolti (ÍTF) sendu í vikunni frá sér beiðni um tillögur (Request for Proposals) vegna úthlutunar sjónvarps- og útsendingaréttinda fyrir næstu fjögur ár (2022-2025) varðandi tvær efstu deildir knattspyrnu karla og kvenna, ásamt Bikarkeppni KSÍ karla og kvenna,
Meistarakeppni KSÍ og deildarbikar karla og kvenna.

Gögnin eru á ensku, en falla engu að síður undir íslensk lög. Núverandi rétthafi er Sýn. Fjölmargir innlendir og erlendir aðilar hafa óskað eftir gögnum þar að lútandi. Leitað verður síðar eftir tilboðum í svokallaðan veðmálarétt og útsendingarétt utan Íslands.

Um er ræða tímamótaverkefni þar sem aldrei fyrr frá fyrsta formlega Íslandsmótinu árið 1912 (karlar) og 1972 (konur) hefur þessi leið verið farin og í fyrsta sinn sem ÍTF sér um úthlutunina varðandi keppni efstu tveggja deilda Íslandsmótsins. Sömu sögu er að segja varðandi útsendingar frá Bikarkeppni KSÍ sem hófst 1960 hjá körlum og 1981 hjá konum. KSÍ og ÍTF ákváðu snemma í ferlinu að gera þetta sameiginlega og hafa átt í nánu og ánægjulegu samstarfi.

Umtalsverðar breytingar hafa átt sér stað á undanförnum árum varðandi úthlutun og nýtingu sjónvarpsréttinda og framleiðslu sjónvarpsmerkis þar sem stafræn tækni er alls ráðandi. KSÍ og ÍTF hafa lýst yfir áhuga á að nýta enn betur þessa tækni og óska eftir hugmyndum og tillögum frá áhugasömum fyrirtækjum.

Birgir Jóhannsson frá ÍTF, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net fyrr í vetur þar sem hann ræddi þessi mál. Hér að neðan má hlusta á viðtalið.
Fótboltapólitíkin með Birgi framkvæmdastjóra ÍTF
Athugasemdir
banner
banner
banner