Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. mars 2021 18:15
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho segist vera einn mikilvægasti þjálfari heims
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourinho segist vera einn mikilvægasti þjálfari heimsins en sat fyrir svörum hjá stærsta styrktaraðila Tottenham Hotspur.

Lærisveinar Mourinho eru þessa stundina í landsliðsverkefnum á meðan hann er í Lundúnum að sinna öðrum verkefnum.

AIA, helsti styrktaraðili Tottenham, er með leik sem heitir Game on with Mourinho en þar svarar hann spurningum frá stuðningsmönnum í gegnum streymi.

Hann var spurður út það hvernig hann höndlar gagnrýni fyrir leikstíl sinn og var svar hans afar einfalt.

„Ég er nokkuð viss um það að enginn ræðir geimflaugavísindi við þá sem vinna hjá NASA. Þeir halda að þeir geti rætt fótbolta við einn mikilvægasta knattspyrnustjórann í leiknum. Það er fegurðin við fótboltann. Ég er orðinn vanur þessu og kann að meta þetta, svo mér er alveg sama," svaraði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner