Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 26. mars 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ráðinn í sálfræðitengd verkefni og fræðslu yngri landsliða Ísland
Úr leik hjá U19 landsliði Íslands.
Úr leik hjá U19 landsliði Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur gengið frá tímabundinni ráðningu Gríms Gunnarssonar í hlutastarf á knattspyrnusvið.

Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Grímur mun starfa við sálfræðimælingar og sálfræðitengda fræðslu til yngri landsliða, auk utanumhalds mæligagna í Soccerlab gagnagrunni KSÍ og annarra verkefna.

Um er að ræða framhald á þeim verkefnum sem Grímur hefur unnið með KSÍ síðustu misserin, en Grímur var tilnefndur til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands og hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir verkefnið „Sálfræðileg hæfnisþjálfun ungra knattspyrnuiðkenda á Íslandi“.

KSÍ býður Grím velkominn til starfa.
Athugasemdir
banner
banner
banner