Marcus Rashford verður ekki með Englendingum og gæti misst af leik Man Utd gegn Brighton næstu helgi
Bukayo Saka og Marcus Rashford verða ekki með enska landsliðinu gegn Albaníu og Póllandi í undankeppni HM en þetta staðfesti enska knattspyrnusambandið í kvöld.
Leikmennirnir voru ekki með í 5-0 sigri enska landsliðsins á San Marínó í gær vegna meiðsla en Englendingar eiga tvo erfiða leiki í viðbót í þessum mánuði.
Liðið mætir Albaníu og Póllandi í undankeppninni en þeir munu einnig missa af þeim leikjum.
Rashford fór í skoðun á St. George's Park-svæðinu og var ákveðið að senda hann heim og fer hann í endurhæfingu hjá Manchester United.
Hann meiddist gegn AC Milan í Evrópudeildinni á meðan Saka meiddist í grannaslag Arsenal gegn Tottenham.
Ekki er ljóst hvort leikmennirnir verði með félagsliðum sínum næstu helgi en United mætir Brighton á meðan Arsenal spilar við Liverpool.
Athugasemdir