Leikmenn þýska landsliðsins sýndu verkamönnum í Katar stuðning með því að klæðast bolum sem mynduðu orðið 'Human rights (mannréttindi)' fyrir leikinn gegn Íslandi í gær.
Aðbúnaður verkamanna í Katar hefur verið gagnrýndur harðlega í aðdraganda HM þar í landi á næsta ári.
Norðmenn klæddust bolum til að sýna verkamönnum stuðning fyrir leik sinn gegn Gíbraltar á miðvikudag.

Þjóðverjar sýndu síðan stuðning í gær.
„HM er framundan og það verður umræða í kringum þetta. Við vildum sýna að við horfum ekki framhjá þeirri umræðu," sagði Leon Goretzka leikmaður Þýskalands.
Hér að neðan má sjá bolina sem Þjóðverjar klæddust.
❗#HUMANRIGHTS pic.twitter.com/UqQrVLarfD
— Die Mannschaft (@DFB_Team) March 25, 2021
Athugasemdir