Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 26. mars 2021 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Umboðsmaður Bale: Ummæli hans tekin úr samhengi
Gareth Bale
Gareth Bale
Mynd: Getty Images
Jonathan Barnett, umboðsmaður Gareth Bale, segir að ummæli velska landsliðsmannsins um framtíðina hafi verið tekin úr samhengi en hann greinir frá þessu í viðtali við BBC Wales.

Bale er á láni hjá Tottenham Hotspur frá Real Madrid en hann hefur verið að gera fína hluti seinni hluta tímabils með Lundúnarliðinu.

Hann hefur skorað 10 mörk og lagt upp 3 í 25 leikjum með Tottenham og virðist vera að nálgast sitt besta form en hann var í viðtali á dögunum þar sem hann greindi frá því að hann myndi snúa aftur til Real Madrid eftir tímabilið.

Barnett segir að ummæli hans hafi verið tekin úr samhengi en ákvörðun liggur ekki fyrir um framtíð hans.

„Ummæli Bale voru tekin úr samhengi. Það er enginn tímarammi ákvörðunartöku varðandi framtíð hans og í augnablikinu er hann bara að einbeita sér að boltanum," sagði Barnett.
Athugasemdir
banner
banner
banner