Xabi Alonso, fyrrum miðjumaður Liverpool, Real Madrid og Bayern Munchen, mun ekki taka við þýska félaginu Gladbach í sumar eins og fréttir sögðu fyrr í vikunni.
Marco Rose, þjálfari Gladbach, mun færa sig yfir til Borussia Dortmund í sumar og leit stendur yfir að eftirmanni hans.
Í vetur hefur hinn 39 ára gamli Alonso stýrt B-liði Real Sociedad í spænsku C-deildinni en liðið er í efsta sæti í sínum riðli og í baráttu um að komast upp í B-deildina.
Real Sociedad tilkynnti í dag að Alonso hefði framlengt samning sinn við félagið til ársins 2022 og því ljóst að hann fer ekki til Þýskalands í sumar.
Athugasemdir