Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. apríl 2020 22:59
Brynjar Ingi Erluson
McTominay vildi ekki fara á lán - „Ég nýtti tækifærið"
Scott McTominay hefur verið magnaður með United
Scott McTominay hefur verið magnaður með United
Mynd: Getty Images
Scott McTominay, leikmaður Manchester United, átti möguleikann á því að fara á lán frá félaginu áður en hann fékk tækifærið í aðalliðinu en hann hugsaði aldrei um að fara annað.

Skoski miðjumaðurinn hefur brotið sér leið inn í lið United og er nú með mikilvægari leikmönnum liðsins en Jose Mourinho gaf honum tækifærið hjá United árið 2017.

McTominay gat farið á lán fyrir einu og hálfu ári síðan en hann ákvað þó að vera áfram og berjast fyrir sæti sínu.

„Það var fyrir svona einu og hálfu ári þar sem ég gat farið á lán en svo fóru einhverjir leikmenn og þá gafst tækifærið og ég ákvað að nýta það," sagði McTominay í Official United-hlaðvarpinu.

„Maður heyrir sögur af strákum sem fara á lán en ég vildi aldrei taka þann séns. Ég vildi fyrst sanna mig hér og ef það myndi ekki ganga upp þá færi ég annað."

„Maður heyrir sögur um að lifa lúxuslífi hjá Manchester United og það eru margir sem taka því sem sjálfsögðum hlut. Eins og að fá mat á æfingasvæðinu, einhver búinn að græja æfingafötin fyrir þig á hverjum morgni og menn bara búast við því en maður verður að muna hvaðan maður er og vera þakklátur fyrir það sem fólk gerir fyrir þig,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner