Franska stórliðið Paris Saint-Germain er á höttunum eftir Theo Hernandez, leikmanni AC Milan, en þetta kemur fram í bæði frönsku og ítölsku miðlunum í dag.
Milan keypti Hernandez frá Real Madrid á síðasta ári en hann hefur verið magnaður hjá Milan og gert sex mörk og lagt upp þrjú í 25 leikjum.
Samkvæmt Le10Sport og Calciomercato þá er PSG á eftir Hernandez en félagið vill fá hann inn fyrir Layvin Kurzawa í vinstri bakvarðarstöðuna.
Milan vill fá 60 milljónir evra fyrir Hernandez en félagið keypti hann á 20 milljónir evra frá Real Madrid. Verðið á honum hefur því þrefaldast en talið er að PSG sé tilbúið að greiða þá upphæð.
Theo er bróðir Lucas Hernandez sem spilar fyrir Bayern München í Þýskalandi.
Athugasemdir