Enska úrvalsdeildarfélagið Watford hefur áhuga á því að fá Kwadwo Asamoah frá Inter í sumar.
Asamoah, sem er 31 árs gamall, á eitt ár eftir af samningnum hjá Inter en hann hefur aðeins komið við sögu í ellefu leikjum hjá Inter á þessu tímabili.
Hann er þegar farinn að hugsa um að yfirgefa Inter en enska félagið Watford hefur sýnt honum mikinn áhuga.
Watford er í eigu Pozzo-fjölskyldunnar en hún á einnig ítalska félagið Udinese sem Asamoah lék með frá 2008 til 2012.
Tyrkneska félagið Fenerbahce vill einnig fá Asamoah en félagið er tilbúið að bjóða honum tveggja ára samning og sömu laun og hann er með hjá Inter.
Athugasemdir