Juventus er að spila við Sampdoria í lokaumferð deildartímabilsins á Ítalíu. Juve er löngu búið að tryggja sér sinn áttunda Ítalíumeistaratitil í röð og teflir því fram varaliði í dag.
Byrjunarlið Juve er tilraunakennt þar sem mörgum af helstu stjörnum liðsins er gefið frí, enda eru landsleikir framundan í júní.
Það vekur athygli að Massimiliano Allegri, þjálfari Juve, notaðist aldrei við sama byrjunarlið á deildartímabilinu. Yfir 38 leiki notaði hann 38 mismunandi lið.
Þetta er ekkert nýtt hjá Allegri því hann hefur stýrt Juventus í 190 Serie A leikjum og notast við 185 mismunandi byrjunarlið. Í 142 leikjum bar Juventus sigur úr býtum.
Byrjunarlið Juventus í dag:
Pinsoglio - Caceres, Rugani, Chiellini, De Sciglio - Cuadrado, Bentancur, Can - Dybala, Kean, Pereira
Athugasemdir