Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 26. maí 2019 19:45
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Arna Sif: Þetta hafðist
Arna Sif fyrirliði Þór/KA
Arna Sif fyrirliði Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Planið var í raun bara að koma og vinna, og það hafðist þannig við erum bara gríðarlega sátt með það,“ sagði Arna Sif fyrirliði Þór/KA sem stóð eins og klettur í vörn Þór/KA sem vann 2-1 sigur gegn Keflavík fyrr í dag.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  2 Þór/KA

Keflavík settu mikla pressu á Þór/KA og gáfu þeim ekkert eftir. Þær voru hættulegar í föstum leikatriðum og þá sérstaklega náðu þær að skapa hættu eftir löng innköst frá Sveindísi.

„Þær voru að ógna í föstum leikatriðum og eru gríðarlega sterkar þar, en við eigum að geta varist þessu. Því miður fengum við eitt svoleiðis á okkur í fyrri hálfleik sem við vorum ósáttar með og töluðum um í hálfleik og leystum það mjög vel í seinni fannst mér.“

„Við bjuggumst við þeim svona sterkum. Þær eru náttúrulega ekki búnar að vinna leik í deildinni í sumar, svo þær þurftu að sækja til að vinna. Við vissum að þær væru að fara að reyna langa bolta inn fyrir og væru sterkar í föstum leikatriðum svo það kom okkur ekkert á óvart,“ sagði Arna Sif að lokum

Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner