Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. maí 2019 18:30
Egill Sigfússon
Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Lasse Petry snýr aftur - Mikkelsen frá
Þórir Guðjónsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í kvöld
Þórir Guðjónsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur fær Breiðablik í heimsókn á Origo vellinum í kvöld klukkan 19:15 í 6. umferð Pepsí Max deildar karla. Fyrir leikinn er Valur í 10. sæti með 4 stig og Breiðablik í 3.sæti með 10 stig.

Hjá Val er ein breyting frá tapinu gegn FH, Lasse Petry er búinn að jafna sig af meiðslum og kemur inn í byrjunarliðið fyrir fyrirliðann Hauk Pál sem tekur út leikbann.

Breiðablik gerir tvær breytingar frá tapinu gegn ÍA, Thomas Mikkelsen er meiddur og spilar ekki í kvöld, þá fer Höskuldur Gunnlaugsson á varamannabekkinn. Þórir Guðjónsson og Aron Bjarnason koma inn í byrjunarliðið í þeirra stað.

Byrjunarlið Vals
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Andri Adolphsson
19. Lasse Petry
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson (f)
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
71. Ólafur Karl Finsen

Byrjunarlið Breiðabliks
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Jonathan Hendrickx
10. Guðjón Pétur Lýðsson
17. Þórir Guðjónsson
18. Arnar Sveinn Geirsson
19. Aron Bjarnason
20. Kolbeinn Þórðarson
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman

Leikurinn er í beinni textalýsingu hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner