Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. maí 2019 08:30
Oddur Stefánsson
Heimild: Goal 
Heimska ef Liverpool kaupir annan miðvörð
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher fyrrum leikmaður Liverpool segir að Joel Matip og Joe Gomez hafa sýnt Jurgen Klopp það að þeir geta verið í hjarta varnarinnar ástamt Virgil van Dijk.

Liverpool hefur verið orðað við hollenska miðvörðinn Matthijs de Ligt frá Ajax.

Carragher er ekki sannfærður um að Liverpool þurfi að eyða jafn miklu og áður eftir að Klopp keypti Van Dijk á 75 milljónir punda í janúar á síðasta ári.

„Fyrir þrem mánuðum þá hugsaði ég, við verðum að kaupa miðvörð, það var ekki hægt að treysta á Lovren eða Gomez líkamlega."

„Ég held að þú þurfir að vera klikkaður til að kaupa annan miðvörð, nema Lovren fari," sagði Carragher „Það er of mikil meiðslahætta hjá honum."

Vörnin hjá Liverpool var frábær á þessu tímabili og fékk liðið aðeins á sig 22 mörk í 38 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner