Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 26. maí 2019 07:00
Oddur Stefánsson
Heimild: Goal 
Kean líklegur til að framlengja við Juventus
Mynd: Getty Images
Moise Kean núverandi leikmaður Juventus er líklegur til að skrifa undir nýjan samning til 2024.

Stjórn Juventus kann mjög vel við hinn 19 ára gamla Kean og eru nálægt því að fá hann til að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Kean er samningsbundinn ítölsku meisturunum til 2020 og eftir sterka innkomu hjá honum á þessu tímabili hefur stjórnin ákveðið að bjóða honum nýjan samning með betri launum.

Goal greinir frá því að með nýja samningnum mun Kean þéna tvær milljónir evra á tímabili plús bónusa.

Kean hefur skorað 11 mörk í efstu deild á Ítalíu og er yngsti markaskorari ítalska landsliðsins í keppnisleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner