„Alltaf eftir tapleiki er maður drullusvekktur, það er bara þannig," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-0 tap gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni í dag.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Stjarnan
„Mér fannst við spila ágætlega í dag á móti sterku liði Skagamanna. Þetta var barningur fram og til baka. Við héldum skipulagi og vorum hættulegir í föstum leikatriðum. Svo fáum við á okkur mark gegn gangi leiksins úr föstu leikatriði. Það var frekar ódýrt."
„Þeir fara að verjast eftir það, liggja til baka og beita skyndisóknum. Þeir eru flinkir við það."
„Það þýðir ekkert að vera að svekkja sig á þessu, allt í lagi í kvöld en það er nýr dagur á morgun."
Stjarnan hefur verið í basli í sóknarleiknum og núna ekki skorað í tveimur leikjum í röð.
„Tölfræðin talar sínu máli. Við náðum ekki að skora í dag og ekki í síðasta leik heldur. Það er ekki gott."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir