Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. maí 2020 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Henderson fær leyfi til að klára tímabilið með Sheffield Utd
Dean Henderson fær að klára tímabilið með Sheffield United
Dean Henderson fær að klára tímabilið með Sheffield United
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United ætlar að leyfa Dean Henderson að klára tímabilið með Sheffield United en þetta kemur fram í Telegraph.

Henderson er 23 ára gamall og uppalinn hjá Man Utd en hann hefur verið á láni hjá Sheffield United síðustu tvö tímabilin.

Hann hefur verið magnaður á milli stanganna hjá Sheffield en lánssamningur hans á að renna út í lok júní.

Samkvæmt Telegraph mun Man Utd leyfa honum að klára tímabilið með Sheffield United þrátt fyrir að liðin eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.

Sheffield United er aðeins tveimur stigum á eftir Man Utd en á þó leik inni.

Henderson má spila í öllum leikjum deildarinnar en fær ekki að vera með þegar liðið mætir Man Utd á Old Trafford.
Athugasemdir
banner
banner
banner