Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. maí 2021 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór ekki með Fylki vegna nárameiðsla
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það vakti athygli að Arnór Borg Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Fylkis gegn Víkingi í gærkvöldi.

Arnór glímir við nárameiðsli og meiddist í leiknum gegn Keflavík síðasta föstudag.

Þetta staðfesti Atli Sveinn Þórarinsson. annar af þjálfurum Fylkis, í viðtal við Gunnlaug Jónsson á Stöð 2 Sport fyrir leikinn í gærkvöldi.

Óvíst er hversu lengi Arnór verður frá. Atli Sveinn var til viðtals eftir leikinn í gær hér á Fótbolti.net og má sjá það hér að neðan.
Atli Sveinn: Kannski best að láta meiddan mann liggja á vellinum til að fá skiptinguna
Athugasemdir
banner
banner
banner