Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. maí 2021 21:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Villarreal vann Evrópudeildina
Ótrúleg vítaspyrnukeppni
Rulli skoraði og varði svo frá David de Gea.
Rulli skoraði og varði svo frá David de Gea.
Mynd: EPA
Villarreal er Evrópudeildarmeistari í fyrsta sinn.
Villarreal er Evrópudeildarmeistari í fyrsta sinn.
Mynd: EPA
Moreno kom Villarreal yfir í leiknum.
Moreno kom Villarreal yfir í leiknum.
Mynd: EPA
Cavani jafnaði fyrir Man Utd.
Cavani jafnaði fyrir Man Utd.
Mynd: EPA
Villarreal 1 - 1 Manchester Utd
1-0 Gerard Moreno ('29 )
1-1 Edinson Cavani ('55 )

Vítaspyrnukeppnin:
1-0 Gerard Moreno skoraði
1-1 Juan Mata skoraði
2-1 Dani Raba skoraði
2-2 Alex Telles skoraði
3-2 Paco Alcacer skoraði
3-3 Bruno Fernandes skoraði
4-3 Alberto Moreno skoraði
4-4 Marcus Rashford skoraði
5-4 Dani Parejo skoraði
5-5 Edinson Cavani skoraði
6-5 Moi Gomez skoraði
6-6 Fred skoraði
7-6 Raul Albiol skoraði
7-7 Daniel James skoraði
8-7 Francis Coquelin skoraði
8-8 Luke Shaw skoraði
9-8 Mario Gaspar skoraði
9-9 Axel Tuanzebe skoraði
10-9 Pau Torres skoraði
10-10 Victor Lindelöf skoraði
11-10 Geronimo Rulli skoraði
11-10 David de Gea klúðraði

Villarreal er sigurvegari í Evrópudeildinni 2021. Villarreal hafði betur gegn Manchester United í vítaspyrnukeppni.

Man Utd var miklu meira með boltann í fyrri hálfleik en þeir sköpuðu sér ekki mikið. Villarreal tók forystuna þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum.

Það var sóknarmaðurinn Gerard Moreno sem kom gula kafbátnum yfir eftir aukaspyrnu. Enn og aftur er Man Utd að fá á sig mark eftir fast leikatriði en það hefur líklega verið versti óvinur liðsins á tímabilinu.

Staðan var 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og Ole Gunnar Solskjær gaf mönnum væntanlega góðan hárblásara í hálfleiknum. Norðmaðurinn virkaði mjög pirraður á hliðarlínunni í hálfleik.

Snemma í seinni hálfleiknum jafnaði United og var þar að verki Edinson Cavani sem hefur verið sjóðandi heitur fyrir framan markið að undanförnu. Marcus Rashford átti skot sem fór af varnarmanni og datt boltinn fyrir fætur Cavani. Hann átti ekki í neinum vandræðum með að skora og jafna metin.

Man Utd var sterkari aðilinn áfram en vörn Villarreal er sterk og hún hélt út. Það þurfti að framlengja.

Framlengingin var ekki mjög tíðindamikil. Boltinn fór í hendi Fred í teignum og það var skoðað hvort Villarreal ætti að fá vítaspyrnu. Boltinn fór í jörðina fyrst og skoppaði upp í hendi Fred. Það var ekki dæmt víti á það.

Staðan var jöfn eftir framlengingu og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Það var rigning í Gdansk, alveg eins og í Moskvu fyrir 13 árum þegar United lagði Chelsea í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Vítaspyrnukeppnin var ótrúleg. Hún var endalaus, nánast. Allir útileikmenn skoruðu úr sínum spyrnum og þetta endaði á markvörðunum. Geronimo Rulli skoraði en David de Gea klikkaði. Villarreal er Evrópudeildarmeistari í fyrsta sinn.
Athugasemdir
banner
banner