Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. maí 2021 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale í golf? - „Ég vil helst ekki tala um svona kjaftæði"
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale flýtti sér til Spánar eftir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar síðasta sunnudag.

Bale var á láni hjá Tottenham frá Real Madrid á tímabilinu en hann sýndi á köflum hversu góður hann er í fótbolta. Kaflarnir voru hins vegar ekki alveg nægilega margir.

Samningur hins 31 árs gamla Bale við Real Madrid rennur út sumarið 2022 en hann er ekki sagður í plönum félagsins fyrir næstu leiktíð.

Bale er að fara á Evrópumótið með Wales í sumar. Í viðtali eftir sigurinn á Leicester í gær sagðist hann vita hvar framtíð sín lægi en hann vildi ekki gefa það upp.

Í kjölfarið fóru af stað sögur um að hann myndi hætta í fótbolta í sumar til að einbeita sér að golfi, en honum finnst mjög gaman að spila golf. Spænski fjölmiðillinn ABC hélt þessu fram.

Umboðsmaður Bale, Jonathan Barnett, var í viðtali við Talksport þar sem hann var spurður út í þessari fréttir.

„Ég vil helst ekki tala um svona kjaftæði," sagði Barnett en það verður fróðlegt að sjá hvað Bale gerir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner