Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. maí 2021 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mætir United í kvöld og er skotmark félagsins - „Klæddur gulu í dag"
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Pau Torres hefur átt góða leiktíð með Villarreal og verður í spænska landsliðshópnum á EM í sumar.

Torres verður að öllum líkindum í liði Villarreal gegn Manchester United í kvöld þegar liðin mætast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Torres er undir smásjá United og hefur verið orðaður við félagið að undanförnu.

Hann var spurður út í þær sögusagnir í viðtali fyrir leikinn en kaus að tjá sig lítið um orðróminn.

„Í dag er ég klæddur gulu, ég sé að ég er orðaður við annað félag. Ég er samningsbundinn út tímabilið 2023/24 og ég horfi ekkert lengra en á þennan úrslitaleik."

Torres er 24 ára miðvörður. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00 í Gdansk í Póllandi.
Athugasemdir
banner
banner