Alberto Moreno, fyrrum leikmaður Liverpool og nú leikmaður Villarreal, segir að Unai Emery, stjóri Villarreal, sé besti stjóri sem hann hefur haft á sínum ferli, jafnvel betri en Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
„Unai er besti þjálfari sem ég hef haft. Hann veit hvernig á að kreista það besta út úr þér og hvað sé best að segja við leikmenn á hverjum tímapunkti," sagði Moreno í viðtali.
Moreno féll úr náðinni hjá Liverpool og var seldur til Spánar. Nú er hann að gera sig kláran fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld.
Moreno var seldur árið 2019 til Villarreal. Hann var ekki í náðinni hjá Liverpool undir lok hans tíma þar og sló Andy Robertson hann út úr liðinu.
„Það voru ákveðin skilaboð þegar James Milner var settur í vinstri bakvörðinn. Ef þjálfarinn vill nota réttfættan miðjumann þá er augljóst að hann vill mig ekki."
„Ég fékk tækifærið á undirbúningstímabilinu en meiddist á ökkla. Í kjölfarið var svo Robertson tekinn inn og það var aldrei ástæða til að taka hann úr liðinu," sagði Moreno.
Athugasemdir