Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 26. maí 2021 18:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tielemans mögulegur arftaki Wijnaldum í Liverpool
Youri Tielemans.
Youri Tielemans.
Mynd: EPA
Georginio Wijnaldum er á förum frá Liverpool þegar samningur hans rennur út í lok næsta mánaðar.

Wijnaldum hefur reynst frábærlega fyrir Liverpool og spilað stórt hlutverk í sigrum félagsins í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.

Talið er að hann sé að semja við Barcelona en það er spurning hvort Liverpool næli sér í miðjumann í sumar í staðinn fyrir Wijnaldum.

Het Nieuwsblad í Belgíu segir að Youri Tielemans sé á lista Liverpool fyrir sumarið ef þeir skyldu kaupa sér miðjumann í sumar. Tielemans leikur með Leicester og á tvö ár eftir af samningi sínum þar.

Það er talið að Manchester United, sem og stærstu félög Spánar, hafi einnig áhuga á þessum öfluga miðjumanni Leicester.

Tielemans var leikmaður ársins hjá Leicester sem rétt missti af Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner