Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 26. maí 2021 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður Sara liðsfélagi hinnar mögnuðu Miedema?
Vivianne Miedema er markamaskína með meiru.
Vivianne Miedema er markamaskína með meiru.
Mynd: Getty Images
Arsenal og Lyon eru að ræða sín á milli um að skipta á tveimur leikmönnum. Það er Guardian sem segir frá.

Vivianne Miedema, sóknarmaður Arsenal, rennur út á samningi á næsta ári og Lundúnafélagið er að skoða það að skipta henni yfir til Lyon.

Arsenal vill þá fá ensku landsliðskonuna Nikita Parris frá Lyon í staðinn.

Parris fór frá Manchester City til Lyon 2019 sem markahæsti leikmaður í ensku úrvalsdeildarinnar með 49 mörk. Miedema bætti met hennar á leiktíðinni sem var að klárast. Miedema er algjör markamaskína og er bæði markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og í sögu hollenska landsliðsins.

Sara Björk Gunnarsdóttir er á mála hjá Lyon en hún er ekki að spila með Lyon þessa stundina þar sem hún er ólétt.
Athugasemdir
banner
banner