Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. maí 2021 19:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Villarreal tók forystuna - Solskjær reiður á hliðarlínunni
Gerard Moreno fagnar marki sínu.
Gerard Moreno fagnar marki sínu.
Mynd: EPA
Villarreal er búið að taka forystuna í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Manchester United.

Það var sóknarmaðurinn Gerard Moreno sem kom gula kafbátnum yfir eftir aukaspyrnu. Enn og aftur er Man Utd að fá á sig mark eftir fast leikatriði en það hefur líklega verið versti óvinur liðsins á tímabilinu.

Markið má sjá með því að smella hérna.

„Lindelöf verður að vera sterkari þarna. Hann verður að halda boltanum fyrir framan sig. Þetta er góð afgreiðsla og góð fyrirgjöf," sagði Dion Dublin, fyrrum sóknarmaður Man Utd, á BBC.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, er allt annað en sáttur og hefur sýnt reiði á hliðarlínunni með frammistöðu síns liðs.

Það er nóg eftir af leiknum en hægt er að fylgjast með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.


Athugasemdir
banner
banner
banner