Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 26. maí 2022 22:30
Sverrir Örn Einarsson
Júlli Magg: Tókum þennan leik alvarlega
Júlíus Magnússon
Júlíus Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég held að þetta hafi verið mjög "professional" og frá fyrstu mínútu tókum við þessum leik alvarlega og sýndum það og sönnuðum að við tökum öllu alvarlega og þetta var bara flottur sigur. “Sagði Júlíus Magnússon fyrirliði Víkinga eftir 7-0 sigur Víkinga á Haukum í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Haukar 0 -  7 Víkingur R.

Víkingar voru langtum sterkari aðilinn allar 90 mínútur leiksins og var það einkennandi hversu alvarlega Víkingar tóku leikinn að þegar hægðist á leik þeirra í stöðunni 3-0 um miðjan fyrri hálfleik voru Arnar Gunnlaugsson og Sölvi Geir Ottesen aðstoðarmaður hans fljótir að öskra menn í gang.

„Það er akkúrat tíminn sem menn slökkva á sér. Þegar maður hugsar það eftir leik er það alveg skiljanlegt að það sé mómentið sem maður missir aðeins fókus en það er tíminn til að snúa þessu við og læra af svona augnablikum þegar þú ert kominn á einhvern þægilegan stað. Sem hefur verið að gerast í sumum leikjum í deildinni sem okkur hefur liðið of þægilega og komnir í of góða stöðu og fáum á okkur mark í stað þess að halda hreinu og halda leiknum í okkar höndum þá missum við hann aðeins frá okkur og þá er okkur stundum refsað.“

Á Júlíus sér óskamótherja í næstu umferð?

„Nei það getur allt gerst en ég er bara spenntur að sjá.“

Sagði Júlíus en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner