Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 26. júní 2018 09:30
Arnar Daði Arnarsson
Gummi Hilmars ræðir um möguleika Íslands og ruglið í Argentínu
Icelandair
Guðmundur Hilmarsson í Gelendzhik.
Guðmundur Hilmarsson í Gelendzhik.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Birkir Már mætir Króatíu í dag ásamt íslenska landsliðinu.
Birkir Már mætir Króatíu í dag ásamt íslenska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Hilmarsson, blaðamaður Morgunblaðsins er bjartsýnn fyrir leiknum í kvöld milli Íslands og Króatíu í D-riðli Heimsmeistaramótsins.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram í Rostov við Don.

„Ég er búinn að taka púlsinn á okkur fjölmiðlamönnum og ég held að ég sé einn af fáu sem spái því að við komumst áfram. Ég held að við vinnum leikinn á morgun, það er ekki sama hvernig við gerum það en ég sé fyrir mér að við vinnum leikinn 3-1 og leikur Argentínu og Nígeríu endi með jafntefli, annað hvort 0-0 eða 1-1 og þar með ætti 16-liða úrslita sætið að vera tryggt," sagði Guðmundur sem segir íslenska liðið eiga helling inni frá síðasta leik.

„Seinni hálfleikurinn fór illa hjá okkur en á morgun vita strákarnir að það er allt undir. Ég reikna með því að Heimir stilli upp sama liði og hann gerði gegn Argentínu. Það eru allar líkur á að Jói sé klár og þar með held ég að hann vilji nota þá leikmenn sem hann notaði gegn Argentínu."

„Á meðan er Króatía komnir áfram og það kemur ákveðin slökun þegar maður er kominn áfram, þó svo að nýir leikmenn fái tækifærið til að koma inn og sýna sig þá held ég að við hittum á leikinn á morgun og tökum þetta," sagði Guðmundur.

Í viðtalinu við Guðmund hér að ofan ræðir hann um leik Nígeríu og Argentínu sem fer fram á sama tíma og ruglið sem er í herbúðum Argentínu.
Athugasemdir
banner
banner