Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 26. júní 2018 12:39
Magnús Már Einarsson
Heimir: Eins og staðan er þá byrjar Jói
Icelandair
Jói æfði með liðinu í gær.
Jói æfði með liðinu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, staðfesti í viðtali við RÚV í gær að Jóhann Berg Guðmundsson verði í byrjunarliðinu gegn Króatíu í kvöld.

„Eins og staðan er í dag þá byrjar Jói á morgun (í dag)," sagði Heimir í viðtali við Eddu Sif Pálsdóttur.

Jóhann meididst á kálfa gegn Argentínu og var ekki með í leiknum gegn Nígeríu á föstudaginn.

„Það var auðvitað sárt að vera ekki með Jóa og geta ekki notað hann. Hann hefur verið stór hluti af velgengni þessa hóps, sóknar og varnarlega."

Jóhann æfði með íslenska liðinu í gær og reikna má með honum á hægri kantinum gegn Króötum klukkan 18:00 í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner