Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari hefur nú haldið síðustu ræðuna fyrir strákana fyrir leikinn gegn Króatíu sem hefst klukkan 18:00.
Nú er rúmlega hálftími í leik og strákarnir komnir út á Rostov leikvanginn í Rostov við Don.
Nú er rúmlega hálftími í leik og strákarnir komnir út á Rostov leikvanginn í Rostov við Don.
Heimir Hallgrímsson nýtti sér tímann og kíkti upp í stúku og heilsaði þar upp á fjölskyldu sína sem hefur verið í Rússlandi á meðan á HM stendur.
Sonur Heimis, Hallgrímur Heimisson er bjartsýnn fyrir leiknum í kvöld.
Mynd af Heimi upp í stúku fyrir leik má sjá hér að neðan.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu frá Rostov leikvanginum.
Athugasemdir