Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, blæs á það athygli utan vallar trufli leikmenn liðsins. Rúrik Gíslason hefur fengið ótrúlega athygli á Instagram á HM og eftir tapið gegn Nígeríu gagnrýndi Halldór Björnsson fyrrum U17 ára landsliðsþjálfari þetta.
„Ég hef aldrei farið inn á Instagram eða hvað sem er í gangi. Ég veit voða lítið um þetta," sagði Heimir í í viðtali við Eddu Sif Pálsdóttur á RÚV.
„Þeir sem eru þar eru hvort sem er alla daga í því þannig að ég held að þetta trufli engan."
Ísland mætir Króatíu í Rostov við Don klukkan 18:00 í kvöld.
Athugasemdir