Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. júní 2018 20:44
Magnús Már Einarsson
Heimir: Vorum góðir í fimm hálfleikjum af sex
Icelandair
Heimir á hliðarlínunni í kvöld.
Heimir á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við áttum mjög góðan leik í dag og mjög góðan leik gegn Argentínu. Við áttum góðan hálfleik gegn Nígeríu. Við vorum góðir í 5 hálfleikjum af 6," sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, þegar hann gerði upp frammistöðu Íslands á HM eftir 2-1 tapið gegn Króatíu í kvöld.

Ísland er úr leik eftir hetjulega baráttu gegn Króötum í lokaumferðinni í kvöld.

„Allar þessar þjóðir eru með leikmenn sem eru að spila í hærri gæðaflokki daginn út og inn. Liðsheildin var eins og hún átti að standa fyrir. Skínandi frammistaða hjá liðsheildinni og það voru leikmenn sem áttu dúndurflott mót."

„Ég get ekki verið annað en sáttur og stoltur af liðinu. Við sýndum að við eigum heima hérna og getum keppt við þá bestu. Við vorum óheppnir í dag. Stundum er þetta stöngin inn og stundum stöngin út. Þannig er lífið og fótboltinn."

Athugasemdir
banner
banner