Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 26. júní 2018 10:00
Arnar Daði Arnarsson
Hólmbert spáir í leik Frakklands og Danmerkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frakkland og Danmörk mætast í lokaumferð C-riðils á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag klukkan 14:00.

Frakkar eru komnir áfram með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar en Danmörk er í harðari baráttu við Ástralíu um að komast áfram. Stig dugar Dönum til að komast áfram.

Hólmbert Aron Friðjónsson, leikmaður Álasund í Noregi spáir í leikinn sem framundan er.

Frakkland 2 - 0 Danmörk(Klukkan 14:00)
Held að Frakkar vinni þennan leik 2-0. Danir stálheppnir að vera komnir með fjögur stig og held að Frakkar taki þetta nokkuð sannfærandi. Held þeir geti sett í annan gír þegar þeir þurfa.
Athugasemdir
banner