Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júní 2018 23:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maradona leitaði sér læknishjálpar - "Fokkaði" á áhorfendur
Mynd: Getty Images
Argentíska goðsögnin Diego Maradona hefur mætt á alla leiki Argentínu á HM í Rússlandi og óhætt er að segja að hann hafi vakið mikla athygli í stúkunni.

Hann trylltist gjörsamlega í kvöld þegar Argentína sigraði Nígeríu 2-1 í háspennuleik. Sigurinn dugði Argentínu áfram í 16-liða úrslit þar sem Ísland tapaði fyrir Króatíu á sama tíma.

Þegar Marcos Rojo skoraði sigurmarkið seint í leiknum fagnaði Maradona með því að "fokka" á áhorfendur.

Maradona fagnaði greinilega of mikið því hann þurfti hjálp við að komast af vellinum eins og sjá má hér að neðan. Eftir leikinn þurfti hann að leita sér læknishjálpar.

Mikið fór fyrir Maradona í leiknum en hann fagnaði marki Lionel Messi í fyrri hálfleiknum vel og innilega og þá tók hann líka blund á meðan leikurinn stóð yfir.

Samkvæmt heimildarmanni Independent er ástand Maradona stöðugt.



Athugasemdir
banner
banner
banner