Milan Badelj, miðjumaður Króatíu, var valinn maður leiksins í 2-1 sigrinum á Íslandi í kvöld.
Badelj skoraði fyrra mark Króatíu en hann var einn af níu leikmönnum sem komu nýir inn í byrjunarliðið gegn Íslandi.
„Við settum 9 leikmenn inn í liðið og unnum og það sýnir breiddina í hópnum okkar," sagði Badelj á fréttamannafundi eftir leik.
„Við þurfum að vera stoltir af því. Þú spilar erfiða leiki á fjögurra daga fresti á HM og þá er mikilvægt að hafa góða breidd. Við sýndum það í dag."
Athugasemdir