Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. júní 2020 23:23
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Hjörtur Hjartar meðal markaskorara í sigri SR
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Snæfell 2 - 4 SR
0-1 Þorvaldur Skúli Skúlason ('9)
0-2 Jón Kaldal ('22)
0-3 Hjörtur Júlíus Hjartarson ('31)
1-3 Brynjar Vilhjálmsson ('53)
2-3 Leó Örn Þrastarson ('55)
2-4 Jóhann Vignir Guðmundsson ('78)

Snæfell tók á móti Skautafélagi Reykjavíkur í eina leik kvöldsins í 4. deild karla.

Gestirnir úr Laugardalnum komust í þriggja marka forystu á fyrsta hálftíma leiksins, þar sem gamla kempan Hjörtur Júlíus Hjartarson var meðal markaskorara.

Brynjar Vilhjálmsson og Leó Örn Þrastarson minnkuðu muninn með tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks og leikurinn opinn á ný.

Það var Jóhann Vignir Guðmundsson sem innsiglaði sigur SR með síðasta marki leiksins á 78. mínútu.

Snæfell er með eitt stig eftir jafntefli við Björninn í fyrstu umferð. Þetta var fyrsti deildarleikur SR í sumar.
Athugasemdir
banner
banner