Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir er ungur og efnilegur sóknarmaður í liði Stjörnunnar. Hún vakti mikla athygli í fyrra þegar hún skoraði 16 ára þrennu gegn HK/Víkingi í Pepsi Max-deildinni.
Hildigunnur á að baki tólf leiki í efstu deild og í þeim hefur hún skorað sex mörk. Hún á þar að auki tólf unglingalandsliðsleiki á ferilskránni, í þeim hefur hún skorað tíu mörk. Í dag sýnir Hildigunnur á sér hina hliðina.
Hildigunnur á að baki tólf leiki í efstu deild og í þeim hefur hún skorað sex mörk. Hún á þar að auki tólf unglingalandsliðsleiki á ferilskránni, í þeim hefur hún skorað tíu mörk. Í dag sýnir Hildigunnur á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir.
Gælunafn: Er oft kölluð Hilla en fíla það samt ekkert sérstaklega mikið.
Aldur: 17 ára.
Hjúskaparstaða: Lausu.
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 15 ára.
Uppáhalds drykkur: Nocco.
Uppáhalds matsölustaður: Sushi Social.
Hvernig bíl áttu: Renault Clio.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Gossip Girl.
Uppáhalds tónlistarmaður: The Weeknd.
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi Jr.
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Fæ mér oftast mars, kökudeig og jarðaber.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: "Staðfestinganúmer: 0267" frá Tokyo Sushi.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Dettur ekkert lið í hug.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Cloé Lacasse, sem var í ÍBV.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Bætti mig mikið hjá Eiði Ben.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Þær eru nokkrar í Val sem tuða óþolandi mikið.
Sætasti sigurinn: Bikarúrslit í 3. fl í fyrra. Unnum leikinn 7-2, alltof létt.
Mestu vonbrigðin: Að detta út í 8 liða úrslitum á Norway Cup á móti ehv Norður Kóresku landsliði.
Uppáhalds lið í enska: Liverpool.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Arna Eiríks er mjög góð.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Margir fallegir, erfitt að velja einn.
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Elín Metta.
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Held að Gyða Kristín fái þann heiður.
Uppáhalds staður á Íslandi: Örugglega bara Garðabærinn.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það hljóp einhvern tímann köttur inn á völlinn og ég þurfti að halda á honum útaf.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Er alltaf bara í símanum, oftast á TikTok.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Var alltaf í fimleikum þannig að mér finnst alltaf gaman að horfa á fimleikamót.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Ég er frekar slök í bókfærslunni.
Vandræðalegasta augnablik: Var ein á móti opnu marki og skaut framhjá fyrir nokkrum árum og ég mun aldrei gleyma því.
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Jönu Sól, Anítu Ýr og Andreu Rut.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég hef aldrei brotið bein.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Margar sem ég hef kynnst í landsliðsferðum eru allt öðruvísi en ég hélt. Maður er búinn að spila við þessar stelpur upp alla yngri flokkana, pirra sig á þeim og rífast við þær inná vellinum. Svo eru þetta bara allt mjög næs gellur.
Hverju laugstu síðast: Sagði að ég vissi ekkert um peysuna hennar systur minnar sem ég tók úr herberginu hennar um daginn.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Upphitun getur verið ekkert eðlilega leiðinleg.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Jönu Sól hvernig hún nær þessu tani.
Athugasemdir