UEFA hefur staðfest að leikur Íslands og Rúmeníu í undanúrslitum um sæti á EM muni fara fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 8. október klukkan 18:45.
Leikurinn átti að fara fram í mars en var frestað vegna kórónaveirunnar.
Leikurinn átti að fara fram í mars en var frestað vegna kórónaveirunnar.
Úrslitaleikurinn fer síðan fram 12. nóvember og mun sigurvegarinn mæta þar Búlgaríu eða Ungverjalandi, ytra.
UEFA hefur einnig breytt leiktímum Íslands í Þjóðadeildinni vegna þessara leikja.
Leikir Íslands í Þjóðadeildinni
Ísland-England (5. september)
Belgía-Ísland (8. september)
Ísland-Danmörk (11. október)
Ísland-Belgía (14. október)
Danmörk-Ísland (15. nóvember)
England-Ísland (18. nóvember)
Athugasemdir