Afturelding og Víkingur Reykjavík mættust í 2.umferð Lengjudeildar kvenna á Fagverksvellinum í kvöld og endaði leikurinn með verðskulduðum 2-0 sigri heimastúlkna.
Lestu um leikinn: Afturelding 2 - 0 Víkingur R.
„Ég er stoltur en ekki glaður. Stelpurnar gerðu sitt besta en eigum ekki góðan dag.
Víkingur byrjaði leikinn vel en náði ekki að framfylgja því, hvað gerðist?
„Við gáfum okkar besta en leikurinn er 90 mínútur og það er ekki nóg að byrja bara vel.''
Hvert er markmið sumarsins?
„Við höfum ekkert markmið, við munum bara fara í alla leiki til að gera okkar besta.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir