Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   fös 26. júní 2020 22:31
Anton Freyr Jónsson
Sesselja Líf: Bara ógeðslega ánægð
Sesselja Líf Valgeirsdóttir fyrirliði Aftureldingar
Sesselja Líf Valgeirsdóttir fyrirliði Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding og Víkingur Reykjavík mættust í 2.umferð Lengjudeildar kvenna á Fagverksvellinum í kvöld og endaði leikurinn með verðskulduðum 2-0 sigri heimastúlkna.

Lestu um leikinn: Afturelding 2 -  0 Víkingur R.

Sesselja Líf Valgeirsdóttir fyrirliði Aftureldingar var eðlilega ánægð að leikslokum.

„Bara ógeðslega ánægð, bara ógeðslega stollt af frammistöðunni og við gerðum allt það sem við ætluðum að gera og þetta heppnaðist bara svakalega vel."

Aftureldingarstúlkur óðu í færum og hefði leikurinn hæglega getað farið stærra og var Sesselja ánægð með spilamennsku liðsins.

„Já, svakalega, ég hef bara ekkert út á þetta að setja, við hefðum geta klárað færin betur, þetta voru bara tvö virkilega góð mörk og virkilega vel unnið."

Afturelding tapaði í 0-2 í fyrstu umferð deildarinnar gegn Tindastól og var Sesselja ánægð með hvernig liðið kom til baka í kvöld.

„Við erum ógeðslega ánægðar með það, fyrsti leikur þetta var ekki alveg eins og við ætluðum að byrja en ætluðum bara að svara því núna og mér fannst við gera það virkilega vel."

Sesselja var spurð út í markmið liðsins í sumar og segir hún að stefnan sé auðvitað að reyna fara upp

„Við ætlum bara að reyna enda sem efst, og taka einn leik í einu. Það er náttúrulega markmiðið að reyna að komast upp."

Kaela Lee Dickerman spilaði frábærlega í liði Aftureldingar í kvöld og Sesselja var ánægð með hennar frammistöðu í kvöld.

„Já, alveg hrikalega hún sprengdi gjörsamlega upp vörnina hjá þeim og ég er bara hrikalega sátt með hana."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner