Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 26. júní 2020 21:05
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu fagnaðarlæti leikmanna Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool vann loksins Englandsmeistaratitil eftir 30 ára bið þegar Chelsea lagði Manchester City að velli í gærkvöldi.

Þetta er fyrsti deildartitill Liverpool síðan úrvalsdeildin var sett á laggirnar 1992.

Leikmenn Liverpool fögnuðu dátt í gærkvöldi þegar þeir horfðu saman á 2-1 sigur Chelsea gegn Man City.

Fagnaðarlætin héldu áfram á æfingu í morgun eins og má sjá hér fyrir neðan.

Næsti leikur Liverpool er á útivelli gegn Man City á fimmtudaginn. Leikmenn City munu þá heiðra nýkrýnda meistara, en City vann deildina 2018 og 2019.


Athugasemdir
banner
banner
banner