Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. júní 2022 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham borgar 11 milljónir fyrir Areola
Mynd: EPA

West Ham United er að ganga frá kaupum á franska markverðinum Alphonse Areola sem er 29 ára gamall.


Areola skrifar undir fimm ára samning við West Ham sem borgar 11 milljónir punda fyrir markvörðinn samkvæmt Sky Sports.

Areola varði síðustu leiktíð að láni hjá West Ham þar sem hann var notaður sem Evrópu- og bikarmarkvörður og stóð sig með mikilli prýði. Í lánssamningnum var kaupmöguleiki sem Hamrarnir hafa ákveðið að nýta sér.

Areola, sem kemur úr röðum Paris Saint-Germain, veitir Lukasz Fabianski samkeppni um byrjunarliðssætið

Þetta eru frábær kaup fyrir Hamranna í ljósi þess að Newcastle og önnur úrvalsdeildarfélög hafa sýnt Areola áhuga í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner