Manchester United tryggði sér Meistaradeildarsæti með 2-0 útisigri á Leicester í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Leicester var í raun hættulegri aðilinn til að skora en eftir rétt rúmar 70 mínútur fékk Man Utd vítaspyrnu. Bruno Fernandes fór á punktinn og skoraði af öryggi. Jesse Lingard gulltryggði svo sigurinn í uppbótartíma eftir slæm mistök Kasper Schmeichel.
Vítaspyrnan í dag var 14. vítaspyrna United á tímabilinu og er það met yfir tímabil í ensku úrvalsdeildinni.
Aldrei hefur lið í ensku úrvalsdeildinni fengið fleiri vítaspyrnur en United á þessari leiktíð.
Það er Opta sem bendir á þessari tölfræði eins og sjá má hér að neðan.
14 – Manchester United’s penalty at Leicester is their 14th Premier League spot-kick of the season, the most one side has ever won in a single campaign in the competition. Typical. pic.twitter.com/3yAuD9xHVp
— OptaJoe (@OptaJoe) July 26, 2020
Athugasemdir