Tottenham gerði í dag 1-1 jafntefli við Crystal Palace og tryggði sér sæti í Evrópudeildinni fyrir næsta tímabil.
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, er ánægður með árangurinn frá því að hann tók við í nóvember.
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, er ánægður með árangurinn frá því að hann tók við í nóvember.
„Þetta tímabil var klikkun. Frá því að félagið var í úrslitaleik Meistaradeildarinnar hefur þetta verið mjög erfitt og upp og niður," segir Mourinho.
„Leikurinn í dag var ekki sá besti, en við höfum verið að spila vel, ná í góð úrslit og verið 'solid' til að koma okkur í Evrópudeildina."
„Frá persónulegu sjónarhorni er ég mjög ánægður því við erum í fjórða sæti frá því að ég tók við. Það er gott miðað við öll vandamálin sem við höfum lent í."
Athugasemdir