Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs í Lengjudeildinni, var hundfúll með frammistöðu liðsins í 6-1 tapinu gegn Fram í Safamýrinni í dag.
Lestu um leikinn: Fram 6 - 1 Þór
Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti gegn öflugu liði Fram en eftir markið fór allt niður á við hjá Akureyringum. Fred Sairaiva jafnaði leikinn og svo skoraði Fram fimm mörk til viðbótar.
„Já, það er svosem enginn heimsendir að tapa fótboltaleikjum fyrir góðu liði Framara. Við vorum aldeilis rassskelltir í dag og þetta var karakterslaust frá því við skorum þetta mark og þangað til þetta var blásið af," sagði Páll Viðar við Fótbolta.net.
„Það er alveg 150 prósent öruggt að ég gerði fullt af vitlausum ákvörðunum í aðdraganda þessa leiks og annað. Við vorum allir með allt lóðrétt niðrum okkur í dag og þá á ég sérstaklega við varnarlega."
„Það er ekki vænlegt til árangurs að fá tvö horn og þrem til tíu sekúndum seinna er mark hinum megin. Við vorum að gera þeim auðvelt fyrir líka og vondur dagur fyrir Þór."
Alvaro Montejo fékk að líta rauða spjaldið á 66. mínútu fyrir að slá Unnar Stein Ingvarsson.
„Dómarinn var eflaust með betri frammistöðu en flestir úr okkar röðum en ég get ekki tjáð mig og sá ekki hvað gerðist. Það verða einhverjir aðrir að svara fyrir þetta," sagði hann í lokin.
Athugasemdir