Theódór Elmar Bjarnason spilaði allan leikinn fyrir Akhisarspor sem tapaði í umspilinu um sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni.
Eftir 3-3 jafntefli á útivelli gegn Fatih Karagümrük í síðustu viku, þá átti Íslendingalið Akhisarspor heimaleikinn í kvöld. Hann fór því miður ekki vel fyrir þá.
Erik Sabo skoraði eina mark leiksins þegar tæpar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Elmar og félagar þurfa því að gera sér það að góðu að vera áfram í B-deild á næstu leiktíð.
Elmar er 33 ára gamall og á hann eitt ár eftir af samningi sínum í Tyrklandi.
Athugasemdir