Ellefu leikmenn úr Bestu deild karla voru úrskurðaðir í leikbann á fundi aganefndar KSÍ í dag. Davíð Ingvarsson í Breiðabliki er þar á meðal en hann fékk umtalað rautt spjald gegn FH á dögunum og tekur út leikbann þegar Blikar leika gegn Skagamönnum eftir viku.
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, fékk rautt í tapleiknum gegn KA á sunnudag og tekur út bann í Þjóðhátíðarleiknum gegn ÍBV á laugardaginn.
Þá fengu níu leikmenn bann fyrir uppsöfnuð gul spjöld, þar á meðal Alex Freyr Elísson í Fram sem verður í banni gegn Stjörnunni á miðvikudaginn í næstu viku. Markaskorarinn Guðmundur Magnússon spilar heldur ekki þann leik þar sem hann hefur safnað fjórum gulum spjöldum.

Alls verða fjórir í banni þegar KA og KR mætast á Akureyri eftir viku, tveir úr hvoru liði. Það eru Bryan Van Den Bogaert og Ívar Örn Jónsson úr KA og Hallur Hansson og Ægir Jarl Jónasson úr KR.
Steven Lennon verður í banni þegar FH heimsækir Val á miðvikudaginn í næstu viku. Arnór Smárason og Birkir Heimisson taka út bann hjá Val.
Í bann í Lengjudeildinni:
Eftirtaldir leikmenn voru dæmdir í eins leiks bann í Lengjudeildinni vegna uppsafnaðra áminninga: Nikulás Val Gunnarsson (Fylki), Kairo Asa Jacob Edwards-John (Grindavík), Óliver Dagur Thorlacius (Gróttu), Björn Þorláksson (KV), Danijel Majkic (Selfoss), Gonzalo Zamorano (Selfoss).
Í bann vegna brottvísunar: Ívar Örn Jónsson (HK), Sverrir Páll Hjaltested (Kórdrengir).
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir