Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. ágúst 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Pochettino veit ekki hvort Eriksen spili fleiri leiki
Christian Eriksen fagnar marki.
Christian Eriksen fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segist ekki vita hvort að Christian Eriksen sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið eða ekki.

Daninn verður samningslaus næsta sumar og Tottenham gæti selt hann til Real Madrid eða annað áður en félagaskiptaglugginn í Evrópu lokar eftir viku.

Eriksen kom inn á sem varamaður í óvæntu tapi Tottenham gegn Newcastle í gær en það gæti hafa verið hans síðasti leikur fyrir félagið.

„Við erum að bíða eftir að sjá hvað gerist," sagði Pochettino eftir leikinn í gær.

„Þetta er ekki auðveld staða. Við vitum að þetta getur haft slæm áhrif á hópinn en eftir tíu daga lýkur þessari óvissu og allt verður klárt."
Athugasemdir
banner