Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 26. ágúst 2021 20:13
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Reynir Sandgerði skellti KV
Mynd: Reynir S.
Reynir S. 4 - 1 KV
0-1 Grímur Ingi Jakobsson ('53)
1-1 Ivan Prskalo ('61)
2-1 Magnús Sverrir Þorsteinsson ('76)
3-1 Kristófer Páll Viðarsson ('81)
4-1 Kristófer Páll Viðarsson ('84)

Reynir Sandgerði og KV áttust við í mikilvægum leik í 2. deild karla og var staðan markalaus í leikhlé.

Grímur Ingi Jakobsson tók forystuna fyrir KV snemma í síðari hálfleik en Ivan Prskalo jafnaði fyrir heimamenn.

Magnús Sverrir Þorsteinsson kom Reynismönnum yfir á 76. mínútu og bætti Kristófer Páll Viðarsson tveimur mörkum við er KV reyndi að sækja jöfnunarmark á lokakaflanum.

Þetta tap er skellur fyrir KV sem hefði komist aðeins einu stigi frá toppliði Vogamanna með sigri. Þess í stað er KV áfram í öðru sæti með 34 stig, en Völsungur getur tekið sætið með sigri gegn toppliði Þróttar um helgina.

Reynismenn sigla lygnan sjó um miðja deild, með 26 stig eftir 19 umferðir.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner