Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 26. ágúst 2021 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Crystal Palace að kaupa Will Hughes
Mynd: EPA
Crystal Palace hefur náð samkomulagi við Watford um kaup á Will Hughes.

Heildarpakkinn er um 10 milljónir punda en inn í þeirri upphæð eru árangurstengdargreiðslur. Hughes fer í læknisskoðun á morgun.

Hughes er 26 ára miðjumaður sem gekk í raðir Wartford árið 2017 frá uppeldisfélagi sínu, Derby County. Hann hefur skorað sjö mörk í 107 deildarleikjum með Watford og lék 30 leiki í fyrra þegar Watford fór upp úr Championship deildinni.

Palace ætlar sér núna að einbeita sér að því að fá inn framherja fyrir gluggalok sem verða á þriðjudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner